
Meðferð tækisins
Fara skal varlega með tækið og alla
fylgihluti þess. Eftirfarandi leiðbeiningar
hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki
og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef
tækið blotnar skal leyfa því að þorna
alveg.
• Ekki skal nota tækið á rykugum eða
óhreinum stöðum né geyma það þar.
Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar
þess geta skemmst.
• Ekki skal geyma tækið við hátt
hitastig. Hátt hitastig getur dregið úr
endingu tækisins og undið eða brætt
plastefni.

ÍSLENSKA
• Ekki skal geyma tækið á köldum stað.
Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu
hitastigi getur raki myndast innan
í því og hann getur skemmt rafrásir.
• Ekki skal reyna að opna tækið öðruvísi
en tilgreint er í notendahandbókinni.
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal
banka í það eða hrista það. Óvarleg
meðferð getur skemmt innri
rafrásarspjöld og annan búnað.
• Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og
þurran klút til að hreinsa yfirborð
tækisins.
• Ekki skal mála tækið. Málningin getur
fest hreyfanlega hluti tækisins og
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum,
rafhlöðum og umbúðum á sérstakar
sorp- og endurvinnslustöðvar. Með
því stuðlar þú að takmarkaðri losun
á úrgangi og endurvinnslu. Skoðaðu
upplýsingar um umhverfisatriði og
endurvinnslu á Nokia-vörum
á www.nokia.com/werecycle,
eða ef þú ert með farsímatæki,
á www.nokia.mobi/werecycle.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða
ruslafötu og er á vörunni,
rafhlöðunni, bæklingnum eða
umbúðunum táknar að fara
verður með allan rafbúnað og
rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma
á sérstaka staði til förgunar að líftíma
vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan
Evrópusambandsins. Hendið þessum
vörum ekki með heimilisúrgangi.
Frekari upplýsingar um umhverfislega
eiginleika tækisins er að finna
á www.nokia.com/ecodeclaration.